föstudagur, desember 02, 2005

Jólin

Núna er annar desember og bráðum koma jólin. Eða þau gera það allaveganna bráðum á Íslandi! Við verðum nú ekki mikið vör við að jólin séu að koma nema kannski þegar við kíkjum á mbl.is og sjáum að metsölulistarnir og verðkannanir eru farnar að birtast. Núna er sól og það er mjög gott að vera ekki í jólastressinu á Íslandi. Núna er samt spurning um hvernig þetta verður af því að við erum í Tælandi. Hér er allt brjálæðislega vestrænt og stílað inn á jólaferðamenn svo að kannski sjáum við þegar jólin koma!
Hvað heitir annars verslunarmiðstöðin sem selur allskonar raftæki og drasl??

1 Comments:

At 11:08, Blogger Bryndís said...

Sæl...

Sorrý ég man ekki hvað tæknimollið heitir, kannski var það Siam center (er samt ekki 100% viss).

Knús og kossar frá Íslandi

Bryndís

 

Skrifa ummæli

<< Home