þriðjudagur, desember 27, 2005

Nudd

Við Gunnar vorum að koma úr nuddi.
Traditional Lao Massage. Það var gaur sem nuddaði mig og ég verð að segja að mér fannst hann annsi harðhenntur. Ég meina gaurinn beitti öllum sínum þunga á kálfana á mér, á handleggina, lærin bakið og hálsinn. Ég hef nú ekki mikla reynslu af svona nuddi; verð að prófa að fara í nudd á Íslandi. Síðan var ég teygð út og suður, böggluð og strekkt. Mér fannst tásunuddið og axlanuddið eiginlega vera best, ahhh. Ég fékk líka nudd með "heitum tepokum", mjög gott.
Ég hef farið í nudd einu sinni áður í þessari ferð. Það var í Kumily á Indlandi. Þá fór ég í æjúrveda nudd með olíum. Það var fönkí. Þar var notuð OLÍA. Við erum að tala um að ég fékk nudd allstaðar og olíu allstaðar. Í hárið, andlitið, allan líkaman, milli tánna undir hendurnar og inn í EYRUN! Mjög sérstakt.
Niðurstaðan er semt sagt sú að það sé fönkí að fara í nudd í Asíu. Verða að prófa þetta í fleiri löndum.

1 Comments:

At 13:59, Blogger Anna Sigga said...

Hey hey.. gaman gaman, ja komin til Asiu aftur, skemmtilega furdulegt allt saman. En vid vitum ekki enn hvert vid forum, vedurspain her litur heldur ekkert allt of vel ut. Bara thrumur og rigning..humm humm..

Alla vega goda ferd til Nam. Mjog svo skemmtilegt land, filadi thad svooo vel!

kv.
Anna Sigga.

 

Skrifa ummæli

<< Home