mánudagur, febrúar 27, 2006

Aswan

Erum í Aswan núna. Komum hingað í gær eftir 13 tíma lestarferð. Hér er heitt, þvílíkur munur á Cairo og Aswan!! Í gær skoðuðum við Gömlu og Háu stífluna, ókláraða óbelíska súlu og Ísis hofið á Philae eyju. Loksins loksins fæ ég að skoða þetta musteri. Alveg magnað kvikindi. Annars er bara allt gott að frétta frá Egyptó, erum í svaka stuði hérna.
Kveðja sveðja
Jóna

Hello taxi
Hello felucca
Hello nubian hat, only 1 pound
Hello spices
hello where come from

Búin að heyra þetta svona 1000 sinnum síðan við komum hingað. Sölumenn eru snillingar!

2 Comments:

At 22:15, Anonymous Nafnlaus said...

Hey, eruð þið ekki komin lengra en listinn yfir löndin sem þið ætluðuð að fara til segir til? Vel gert. Ég sem ætlaði einu sinni að verða Egyptalandsfræðingur verð síðust allra í heiminum að heimsækja landið, hnuss... Skemmtið ykkur vel ;)

 
At 07:31, Anonymous Nafnlaus said...

Hvað með "special price for you my friend"???

 

Skrifa ummæli

<< Home