miðvikudagur, maí 25, 2005

Hættu fuglaflensa hættu !

fimmtudagur, maí 19, 2005

135 dagar

Núna eru bara rétt rúmir 4 mánuðir í að við Gunnar höldum í stóru ferðin. Þá má nú alveg segja með sanni að spenningurinn magnast með hverjum deginum sem líður.
Síðan gengur okkur svona ansi vel að safna fyrir ferðinni að við (ég) getum örugglega eytt hellings pening ;)
Gaman gaman í útlöndum.

fimmtudagur, maí 05, 2005

Meira ákveðið í ferðaáætluninni

Við erum búin að kaupa flugmiða til London, eins gott að komast af þessu skeri! 1. október 2005 klukkan 7.45 leggjum við af stað með Flugleiðavél frá Keflavík. Það þýðir að við verðum komin til London kl. 11.45, sem aftur þýðir að við þurfum að bíða á flugvellinum í 9 klukkutíma eftir tengifluginu til Abu Dhabi. Það er samt allt í lagi vegna þess að þá þurfum við ekki að gista eða vera stressi að missa af seinna fluginu.

Við keyptum netsmell með Flugleiðum og þá neiddumst við til að kaupa far til baka... Hmm... Hvaða dag áttum við að velja? Ég náði næstum að sannfæra Gunnar um að koma heim 1. apríl sem myndi þýða hálft ár í útlandinu! Við urðum svo sammála um að velja dagsetninguna 17. mars 2006. Það þýðir fimm og hálfur mánuður á ferðalagi! 22 vikur þeinkjúverímöst.

Tilhlökkunin magnast með hverjum deginum og núna er að koma sumar sem verður örugglega mjög fljótt að líða. Ég trúi því varla að það séu komnir 5 mánuðir síðan við ákváðum að fara. Það eru einnig 5 mánuðir þangað til að við förum og ég er sannfærð um að þeir verða enn fljótari að líða heldur en síðustu 5. Áður en ég veit af verða ég að skrifa inn á þessa heimasíðu að núna sé aðeins vika í að við förum og síðan skrifa ég að við séum að fara á morgun... Himneskt...

Takk fyrir og góða ferð.

þriðjudagur, maí 03, 2005

Flugmiðar til Delhi komnir

Síðasta fimmtudagskvöld pöntuðum við okkur flugmiða til Delhi aðra leiðina. Þegar ég kom heim úr vinnunni í gær (mánudag) þá voru flugmiðarnir í póstkassanum. DHL hafði komið með pakkann og sett hann í póstkassann. Þvílíkt hröð afgreiðsla. Þannig að núna eigum við flugmiða til Delhi, aðra leiðina. Við fljúgum með Etihad Airways frá London til Delhi 1.október kl. 21:15, millilendum í Abu Dhabi kl. 07:15, fljúgum svo áleiðis til Indlands klukkan 10:00 og lendum í Delhi klukkan 14:45 að staðartíma. Núna eigum við bara eftir að kaupa flugmiða frá Keflavík til London og þá er flugið komið :)

P.s. Abu Dhabi er höfuðborg Sameinuðu arabísku furstadæmanna (United Arab Emirates, UAE).