föstudagur, maí 26, 2006

tunak tunak tun

Gott ef þetta er ekki bara vinsælasta lagið í dag:


http://video.google.com/videoplay?docid=-5995556455415798282&q=tunak

fimmtudagur, maí 18, 2006

Leikið tveimur skjöldum

Átti fróðlegan dag í gær. Var á fundi allan daginn með með viðskiptastjórum frá dönsku fyrirtæki sem Síminn er í viðskiptum við. Eftir daginn buðu þeir okkur út á borða á Humarhúsinu. Tók strætó niður í bæ klæddur skyrtu, bindi, sparibuxum og spariskóm, strætóinn stoppaði fyrir utan Humarhúsið. Kúl að koma út úr strætó og labba beint inn á Humarhúsið. Æðislegur matur á Humarhúsinu, fékk grillaða humarhala með hvítlauk og frábært hvínvín með, ótrúlega gott. Eftir kvöldverðin labbaði ég upp Laugarveginn og hitti Jónu í húsakynnum verkalýðsfélagana BSRB og SFR. Þar voru tónleikar og verið að kynna stefnur flokkanna fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Sá Benna Hemm Hemm, mjög skemmtilegt. Þegar ég sat þarna og var að hlusta, þá vindur sér einhver stelpa upp að mér og segir upp í eyrað á mér: "Þú ert alveg eins og Gísli Marteinn" og labbar í burtu. What, hvaða súrleiki er í einni manneskju!!! Virklega fyndið. Skemmtilegur dagur. Skemmtileg Reykjavík.

fimmtudagur, maí 04, 2006

Frelsum tærnar!!

Ég labbaði um allt í Asíu á Teva sandölunum mínum. Þetta var næstum því eini skóbúnaðurinn sem ég notaði í hálft ár. Enda var svitalyktin og skíturinn á skónum alltaf nærri heilsusamlegum hættumörkum. Ég þreif þá um daginn eftir að ég kom heim og það var mikil drulla, sérstaklega frá eyðimörkum Egyptalands. Núna nota ég þá í vinnuna. Af tillitsemi við aðra verð ég því miður að vera í sokkum í sandölunum. Það er óþæginlegt, mér finnst tærnar svo innilokaðar og mér er alltaf heitt á tánum. Ég héld að tásunar mínar sakni frelsisins að fá að láta vindinn leika um sig.

Árbæjarsafnið út í Viðey?

Minjavernd hefur komið fram með tillögu um að flytja Árbæjarsafnið út í Viðey. Mér finnst þetta frábær hugmynd, miklu skemmtilegra að skoða þessi gömlu hús og húsmuni í flottu umhverfi heldur en þarna í Árbænum með bílanið allt í kring. Það mundi gefa þessu meiri stemmningu að færa þetta í Viðey og mundi tvödalda aðdráttarafl Viðeyjar sem er gott fyrir ferðaþjónustuna. Sé fyrir mér ferðir ferðamanna til Viðeyjar þar sem skoðað er "Viðeyjarsafn" og þær minjar sem eru þar nú fyrir, og enda góða heimsókn á veitingastaðnum í Viðey. Það verður bara að passa að breyta Viðey ekki í einhverja Disney eyju.

Þessi frétt birtist um málið á mbl.is 4. maí 2006:

FORMLEGT erindi varðandi mögulegan flutning Árbæjarsafns til Viðeyjar hefur borist Reykjavíkurborg og verður rætt á fundi borgarráðs í dag. Gert er ráð fyrir að torfbærinn og kirkjan verði áfram á sínum stað, en að öðru leyti verði byggt upp sérbýlishverfi þar sem safnið stendur nú, í stíl við það hverfi sem fyrir er í Ártúnsholtinu.
Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsnefndar, sagði að þetta væri ekki alveg ný hugmynd en spennandi. Hún snerist um það að þau hús sem nú stæðu í Árbæjarsafni yrðu flutt út í austurenda Viðeyjar, þar sem gamla þorpið stóð, og mynduðu þar nýtt safn um sögu Reykjavíkur.
Erindið er frá Minjavernd, sem er fyrirtæki í sameiginlegri eigu ríkis og borgar, í samstarfi við þróunarfélagið Þyrpingu. Dagur sagði að fara þyrfti yfir það hvort þessar hugmyndir væru raunhæfar og hvaða kostnaður væri samfara þessum flutningi, þar sem meðal annars þyrfti að taka til athugunar þætti eins og fyrirkomulag, ferjusiglingar, skipulag í Viðey og í Ártúnsholtinu og rekstur.