mánudagur, ágúst 29, 2005

Tryggingar

Þá er búð að fjárfesta í tryggingum. Rándýrt dæmi þar en alveg þess virði. Vona samt að ég sé bara að tapa peningum á því að fá mér tryggingar. Vona að ég þurfi ekki að nota þær :)

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Vegabréfsáritanir

Ég rölti niður í bæ í dag í hellingsrigningu til að fara í bankann. Ég keypti erlenda ávísun fyrir kostnaðinum fyrir vegabréfsáritunum fyrir okkur til Indlands. Eftir það fór ég svo á pósthúsið og sendi hellings af dóti í ábyrgðarpósti til indverska sendiráðsins í Osló.

Dótið sem ég sendi var:
2x vegabréf
2x svarumslög
12x alþjóðleg svarfrímerki
2x vegabréfsáritunarumsagnir
1x ávísun stílaða á ISN

Núna er bara að bíða og vona það besta. Það er eins gott að þetta komist til skila og komi svo fljótt aftur til okkar.

En allaveganna: 39 dagar í Indland :)

fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Mig langar að fara núna strax !!

miðvikudagur, ágúst 10, 2005

Vííííí

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

60 dagar í Indland

Fínt að fá eitt stykki verslunarmannahelgi til að slappa af. Gerði voðalega lítið um helgina, var mest megnis heima. Var að sjálfsögðu að hugsa um Indland. Í dag eru 60 dagar þangað til við förum, tveir mánuðir. Miðað við hvað júní og júlí liðu hratt sé ég fram á að ágúst og september muni líða ennþá hraðar. Ég og Jóna erum búin að bóka 3 helgar þangað til við förum. Næstu helgi verður ættarmót hjá mér, þar næstu helgi erum við að reyna að fá mömmu og pabba með okkur í Landmannalaugar og fyrstu helgina í september er verið að skipuleggja sumarbústaðarferð með vinum hennar Jónu. Þannig að það er nóg að gerast framundan. Fyrir utan það er þetta á dagskrá vegna Asíufararinnar:
Sækja um vegabréfsáritun
Kaupa lyf
Stússast ýmislegt í bankanum
og síðast og ekki síst pakka niður....
Við þurfum bæði að pakka niður í bakpokan og einnig setja fötin okkar og annað dót í pappakassa til þess að við getum leigt út íbúðina.

Þannig að nóg er að gerast framundan, og ég tek á móti ágúst með brosi á vör. Ég er einnig í góðu ástandi í dag vegna þess hvað ég var rólegur um verslunarmannahelgina, ég kannast við að vera ryðgaður þennan fyrsta dag eftir verslunarmannahelgi, enda er ég alveg viss um að margir hringja sig inn veika en þeir sem hafa vit á því eru náttlega í sumarfríi í dag, maður þarf oft dag til að jafna sig eftir útihátíð, ég kannast við það :)