Árbæjarsafnið út í Viðey?
Minjavernd hefur komið fram með tillögu um að flytja Árbæjarsafnið út í Viðey. Mér finnst þetta frábær hugmynd, miklu skemmtilegra að skoða þessi gömlu hús og húsmuni í flottu umhverfi heldur en þarna í Árbænum með bílanið allt í kring. Það mundi gefa þessu meiri stemmningu að færa þetta í Viðey og mundi tvödalda aðdráttarafl Viðeyjar sem er gott fyrir ferðaþjónustuna. Sé fyrir mér ferðir ferðamanna til Viðeyjar þar sem skoðað er "Viðeyjarsafn" og þær minjar sem eru þar nú fyrir, og enda góða heimsókn á veitingastaðnum í Viðey. Það verður bara að passa að breyta Viðey ekki í einhverja Disney eyju.Þessi frétt birtist um málið á mbl.is 4. maí 2006:
FORMLEGT erindi varðandi mögulegan flutning Árbæjarsafns til Viðeyjar hefur borist Reykjavíkurborg og verður rætt á fundi borgarráðs í dag. Gert er ráð fyrir að torfbærinn og kirkjan verði áfram á sínum stað, en að öðru leyti verði byggt upp sérbýlishverfi þar sem safnið stendur nú, í stíl við það hverfi sem fyrir er í Ártúnsholtinu.
Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsnefndar, sagði að þetta væri ekki alveg ný hugmynd en spennandi. Hún snerist um það að þau hús sem nú stæðu í Árbæjarsafni yrðu flutt út í austurenda Viðeyjar, þar sem gamla þorpið stóð, og mynduðu þar nýtt safn um sögu Reykjavíkur.
Erindið er frá Minjavernd, sem er fyrirtæki í sameiginlegri eigu ríkis og borgar, í samstarfi við þróunarfélagið Þyrpingu. Dagur sagði að fara þyrfti yfir það hvort þessar hugmyndir væru raunhæfar og hvaða kostnaður væri samfara þessum flutningi, þar sem meðal annars þyrfti að taka til athugunar þætti eins og fyrirkomulag, ferjusiglingar, skipulag í Viðey og í Ártúnsholtinu og rekstur.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home